„Fór bara í blackout þegar ég skoraði“

María Dögg skoraði fyrra mark Þórs/KA í gríðarlega mikilvægum sigri sem hélt þeim uppi.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

María Dögg skoraði fyrra mark Þórs/KA í gríðarlega mikilvægum sigri sem hélt þeim uppi.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

María Dögg Jóhannesdóttir skoraði fyrra mark Þórs/KA þegar liðið tryggði áframhaldandi veru sína í Bestu deild kvenna með 2-0 sigri á Víkingi á Víkingsvelli í kvöld.
„Ég er bara í spennufalli. Ég fór bara í blackout þegar ég skoraði og hljóp bara að stúkunni og fagnaði,“ sagði María í viðtali við Fótbolta.net eftir leik.
Hún þakkaði sérstaklega stuðningsfólkinu sem hafði lagt leið sína á völlinn.
„Það voru nokkrir sem gerðu sér langa ferð. Ég þakka þeim innilega fyrir stuðninginn.“
María féll með Tindastóli á síðasta tímabili og þekkti því vel pressuna sem fylgir fallbaráttunni. Hún sagðist þó hafa haft trú á hópnum fyrir leikinn.
„Ég veit ekki hvort maður á að segja að maður sé vanur þessu, en ég var mjög örugg með hópinn. Þessi æfingavika var mjög góð.“
Reynslan nýttist henni einnig til að hjálpa liðsfélögunum að takast á við spennuna.
„Ég hef verið í þessari stöðu áður og maður reyndi bara að róa niður þær sem voru stressaðar.“
Leikur Fram og Vals fór fram á sama tíma og þar var heldur betur spenna þegar Valur komst í 0-2 stöðu og leit þá allt út fyrir að bæði liðin á Víkingsvelli myndu falla, Vissu þær stöðuna inn á vellinum?
„Við vildum eiginlega ekkert vita af þessu. Við ætluðum bara að gera okkar og svo myndi koma í ljós hver niðurstaðan yrði. Við vissum að ef við myndum vinna þá væri þetta allt í lagi. Þannig að við vorum bara að pæla í því.“
Fram undan er heimferðin norður og María var ekki í vafa um að sigrinum yrði vel fagnað.
„Úff, það verður vel fagnað.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
