02.10.26 - 21:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Breyting á landsliðshópnum - Jelena kemur inn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

það hefur verið gerð breyting á íslenska landsliðshópnum fyrir leiki gegn Króatíu tvívegis í fyrri umferð umspils um sæti á HM 2027.
Natasha Moraa Anasi getur ekki tekið þátt og Jelena Tinna Kujundzic, leikmaður Þróttar, kemur inn í hennar stað. Jelena á tíu landsleiki að baki fyrir yngri landsliðin. Natasha var ónotaður varamaður í markalausu jafntefli Grindavíkur/Njarðvíkur gegn Stjörnunni í kvöld.

Jelena hefur spilað 22 leiki í deild og bikar með Þrótti í sumar en hún fagnaði bikarmeistaratitlinum með liðinu eftir sigur á Grindavík/Njarðvík í síðasta mánuði.
Fyrri leikurinn gegn Króatíu fer fram á Stadion Aldo Drosina í Pula í Króatíu föstudaginn 9. október kl. 16:45 að íslenskum tíma. Seinni leikurinn fer svo fram þriðjudaginn 13. október á Laugardalsvelli og hefst hann kl. 17:30.