Fotbolti.net
02.10.26 - 21:16
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Fyrirliði Vals eftir fallið: Tókst ekki að búa til liðs eða æfinga kúltúr sem skilaði árangri

Auglýsing
Fyrirliði Vals eftir fallið: Tókst ekki að búa til liðs eða æfinga kúltúr sem skilaði árangri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

„Í dag skildum við allt eftir á vellinum“ sagði Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, eftir 1–2 sigur á Fram. Þrátt fyrir sigurinn féll Valur niður um deild þar sem Þór/KA vann Víking 2–0.

Lestu um leikinn: Fram 1 - 2 Valur

„Ég hef alltaf trú á því að þú uppskeri það sem þú sáir og taflan því miður öskraði á okkur í þetta skipti að við lögðum ekki nærri nóg í þetta. Það er eitthvað sem stýrir oft á tíðum og það er ofboðslega sárt. Okkur tókst ekki að búa til kúltúr eða lið sem var nógu sterkt til þess að halda sér uppi í þessari deild og það er ofboðslega sárt."

„Okkur tókst ekki að búa til liðs eða æfinga kúltúr sem skilaði árangri. Ég held að taflan öskraði það á okkur eins og ég segi. Við lögðum ekki nógu mikið inn og sem einn af leiðtogum liðsins þá verður maður að fara heim og í mikla naflaskoðun núna og spyrja hvort að maður sé verðugur leiðtogi eða liðsmaður yfirhöfuð. Ég held að við þurfum allar að gera það eftir þetta sumar, mótið sjálft er nógu skýrt til þess að taflan skeri úr hverjir eru verðugir sigurvegarar og hverjir eiga að falla."

Hvernig er framtíðin fyrir Val?

„Ég hef ekki hugmynd, það hafa verið miklar breytingar. Ég mun byrja á sjálfum mér og fara heim í naflaskoðun, sennilega allir í kringum liðið líka."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Fyrirliði Vals eftir fallið: Tókst ekki að búa til liðs eða æfinga kúltúr sem skilaði árangri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.