Fotbolti.net
08.11.26 - 16:32
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Fjórða tap Ísaks og Köln á tímabilinu

Þýskaland: Fjórða tap Ísaks og Köln á tímabilinu
Canon

Mynd: EPA

Koln 1 - 2 Bayer
0-1 Aleix Garcia ('7 )
0-2 Patrik Schick ('85 )
1-2 Said El Mala ('90 )
Ísak Bergmann Jóhannesson kom við sögu hjá Köln sem tapaði 2-1 fyrir Bayer Leverkusen í þýsku deildinni í dag.

Miðjumaðurinn byrjaði á bekknum hjá Köln sem lenti undir strax á sjöundu mínútu þegar spænski miðjumaðurinn Aleix Garcia skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu.

Ísak kom inn af bekknum á 75. mínútu, en tíu mínútum síðar tvöfaldaði tékkneski framherjinn Patrik Schick forystu Leverkusen.

El Mala-bræðurnir sáu hins vegar til þess að Köln ætti enn möguleika undir lokin. Malek átti þá frábæra fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn þar sem Said kom á ferðinni og þrumaði boltanum í netið.

Lengra komst Köln þó ekki og Leverkusen fagnaði 2-1 sigri.

Leverkusen situr í fimmta sæti deildarinnar með 16 stig, en Köln er í fimmtánda sæti með níu stig.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern9+2021
2Dortmund9+921
3RB Leipzig9+1418
4Freiburg8+816
5Leverkusen9+316
6Werder9+215
7Elversberg9-113
8Stuttgart9012
9Frankfurt9-512
10Hamburger9-1012
11Mainz9-110
12Paderborn9-310
13Augsburg909
14Hoffenheim8-29
15Köln9-49
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach9-134
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.