Fotbolti.net
08.11.26 - 13:26
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Ítalía: Lazio áfram taplaust á toppnum

Davide Frattesi skoraði mark Lazio

Davide Frattesi skoraði mark Lazio

Canon

Mynd: EPA

Napoli 1 - 1 Lazio
0-1 Davide Frattesi ('28 )
1-1 Alfonso Pedraza ('48 , sjálfsmark)
Topplið Lazio varð að sætta sig við eitt stig þegar liðið heimsótti Napoli í elleftu umferð Seríu A á Ítalíu í dag.

Napoli hefur gengið illa að undanförnu og stuðningsmenn liðsins eru orðnir æfir yfir stöðunni.

Heimamenn lentu undir á 28. mínútu þegar Davide Frattesi kom Lazio yfir með sínu fyrsta marki síðan í september. Gestirnir héldu eins marks forystu út fyrri hálfleikinn.

Snemma í síðari hálfleik varð Lazio hins vegar fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Noa Lang sendi þá boltann fyrir markið og Alfonso Pedraza varð fyrir því að sparka honum í eigið net.

Kevin de Bruyne fékk svo dauðafæri til að koma Napoli yfir nokkrum mínútum síðar þegar hann fékk langa sendingu inn fyrir vörn Lazio. Christos Mandas varði hins vegar frá honum og þegar De Bruyne fékk annað tækifæri í sömu sókn var skoti hans bjargað á marklínu.

Fleiri urðu mörkin ekki og lauk leiknum með 1-1 jafntefli.

Lazio heldur toppsætinu með 29 stig og er enn taplaust í deildinni, en Napoli situr í tíunda sæti með 15 stig.

Albert Guðmundsson var ekki með Lazio í dag, en hann er enn að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir í leik Íslands gegn Eistlandi í lok september.

Gert er ráð fyrir að Albert verði orðinn leikfær þegar Lazio mætir aftur til leiks eftir landsleikjahléið.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1731
2Roma11+2127
3Inter10+1325
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone11+920
7Juventus10+317
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+314
11Torino11-214
12Genoa10-413
13Atalanta10-411
14Lecce11-1010
15Fiorentina10-88
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza10-77
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.