Fotbolti.net
08.11.26 - 14:25
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu fallegt mark Stefáns fyrir Hannover

Stefán Teitur skoraði fyrra mark Hannover

Stefán Teitur skoraði fyrra mark Hannover

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stefán Teitur Þórðarson, fyrirliði Hannover í þýsku B-deildinni, var á skotskónum þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Heidenheim í dag.
Skagamaðurinn tók við fyrirliðabandinu í sumar, en gengi Hannover hefur verið nokkuð brösugt á tímabilinu og var meðal annars skipt um þjálfara snemma á leiktíðinni.

Liðið komst aftur á sigurbraut í síðustu umferð og fylgdi því eftir með einu stigi í dag.

Hannover lenti undir undir lok fyrri hálfleiks, en Stefán jafnaði metin á 55. mínútu með laglegu marki. Hann fékk þá boltann við vítateigslínuna og stýrði honum neðst í nærhornið.

Markið gaf Hannover byr undir báða vængi og liðið komst í kjölfarið yfir, en tókst ekki að halda forystunni lengi. Aðeins þremur mínútum síðar höfðu mótherjarnir jafnað og lauk leiknum með 2-2 jafntefli.

Hannover fór upp um fjögur sæti með jafnteflinu og situr nú í ellefta sæti deildarinnar með tólf stig, níu stigum frá umspilssæti.

Mark Stefáns má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.