08.11.26 - 13:57
Brynjar Ingi Erluson
Breki lagði upp fyrir Hinrik í lokaumferðinni - Davíð Snær skoraði og fer í umspil

Breki Baxter lagði upp fyrir Hinrik

Mynd: EGERSUND

Davíð Snær er á leið í umspil

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breki Baxter lagði upp fyrir Hinrik

Mynd: EGERSUND
Tveir Íslendingar voru á skotskónum í lokaumferð norsku B-deildarinnar í dag.
Það var íslensk samvinna þegar Egersund vann 2-0 útisigur á Raufoss í norsku B-deildinni.
Breki Baxter lagði upp fyrra markið fyrir Hinrik Harðarson, sem skoraði þar með sitt fimmta deildarmark fyrir Egersund á tímabilinu. Þetta var jafnframt fyrsta stoðsending Breka, en hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í síðustu umferð.
Egersund hafnaði í áttunda sæti deildarinnar með 41 stig.
Davíð Snær Jóhannsson var einnig á skotskónum þegar Bryne vann 3-1 sigur á Kongsvinger. Hann skoraði annað mark liðsins, en þetta var annað deildarmark hans á tímabilinu. Davíð lagði einnig upp þrjú mörk á leiktíðinni.
Bryne hafnaði í sjötta sæti með 46 stig og tryggði sér þar með sæti í umspili um sæti í efstu deild.
Breki Baldursson kom inn af bekknum þegar Åsane tapaði 3-1 fyrir Sandnes. Åsane er fallið niður í C-deildina eftir að hafa hafnað í næstneðsta sæti með 25 stig.