08.11.26 - 09:22
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool horfir til Brighton í leit að arftökum Alisson og Van Dijk

Bart Verbruggen er ofarlega á lista Liverpool

Mynd: EPA

Luka Vuskovic til Liverpool?

Mynd: Brighton

Liverpool leitar að arftökum Alisson og Virgil van Dijk, Bayern München er í viðræðum við umboðsmenn Rio Ngumoha og Manchester United hefur mikinn áhuga á vinstri bakverði Rennes. Þetta og margt fleira er að finna í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Liverpool íhugar að leggja fram tilboð í Bart Verbruggen (24), markvörð Brighton og hollenska landsliðsins, en óvissa ríkir um framtíð Alisson Becker (34), sem er samningslaus eftir tímabilið. (Football Insider)
Bayern München er enn í viðræðum við umboðsmenn Rio Ngumoha (18), leikmanns Liverpool, og vonast til að enski vængmaðurinn verði raunhæfur kostur næsta sumar. (Christian Falk)
Liverpool hefur mikinn áhuga á Luka Vuskovic (19), varnarmanni Brighton, en félagið leitar að arftaka Virgil van Dijk (35), sem er samningslaus næsta sumar. (Daily Briefing)
Chelsea og Liverpool hafa bæði áhuga á senegalska vinstri bakverðinum El Hadji Malick Diouf (21), sem leikur með Brentford. (4-4-2.ch)
Crystal Palace, Everton og Leeds fylgjast grannt með stöðu Conor Gallagher (26) hjá Tottenham, en talið er ólíklegt að félagið sé tilbúið að leyfa honum að fara. (Football Insider)
Chelsea íhugar að hefja viðræður við enska varnarmanninn Levi Colwill (23) um nýjan samning, en núverandi samningur hans rennur út árið 2029. Barcelona íhugar hins vegar að leggja fram tilboð í hann í janúarglugganum. (CaughtOffside)
Manchester United er mjög hrifið af Mahamadou Nagida (21), vinstri bakverði Rennes og kamerúnska landsliðsins, en skýrslur útsendara félagsins um leikmanninn hafa verið afar jákvæðar. (Teamtalk)
Sádi-arabíska félaginu Al Hilal hefur boðist að fá Jeremie Frimpong (25), bakvörð Liverpool, aðeins átján mánuðum eftir að hann gekk til liðs við enska félagið frá Bayer Leverkusen. (WinWin)