Fotbolti.net
08.11.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu markið hjá Andra Lucasi - „Vonandi fáum við að sjá hann á allra hæsta stigi"

Sjáðu markið hjá Andra Lucasi - „Vonandi fáum við að sjá hann á allra hæsta stigi"
Canon

Mynd: Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen hefur farið hamförum með Blackburn á tímabilinu en hann skoraði í 2-1 sigri á West Ham í gær. Hann kom liðinu yfir þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Jayden Fevrier.
Championship: Andri Lucas sjóðandi heitur - Ótrúleg endurkoma Cardiff
TENGT EFNI

Championship: Andri Lucas sjóðandi heitur - Ótrúleg endurkoma Cardiff

Andri hefur skorað 10 mörk í 14 leikjum og er næstmarkahæstur í deildinni ásamt Jack Moylan, leikmanni Cardiff en Will Lankshear, leikmaður Middlesbrough er markaæstur með 13 mörk.

Arnar Gunnlaugsson var spurður út í Andra Lucas í aðdraganda síðustu leikjanna í Þjóðadeildinni gegn Búlgaríu og Lúxemborg í komandi landsliðsverkefni. Andri Lucas er að sjálfsögðu í hópnum.

Hann hefur verið með gott 'ratio' í sínum félagsliðum, ekkert endilega einhver markaskorari hann poppar upp við mörk öðru hverju og þarna með aldrinum og reynslunni, meiðslafrír, honum líður vel hjá okkur, líður vel hjá Blackburn. Einhvern veginn líka búinn að ganga í gegnum smá Krýsuvíkurgöngu. Gekk ekkert upp í Svíþjóð, fer svo til Lyngby og þaðan yfir. Hann er, af ungum leikmanni er hann búinn að lifa tvö líf," sagði Arnar.

„Svo náttúrulega með pabba sínum (Eiði Smára Guðjohnsen) á Spáni og þú kynnist lífi atvinnumannsins, þetta er ekkert dans á rósum. Hann er örugglega fyrsti maðurinn sem hefur áttað sig þar í kringum alla þessa fjölskyldusögu að þú mætir fólki sem er annaðhvort með blóm í hendi þinni eða stein og ekkert er á milli. Þeir eru tilbúnir að grýta þig þegar illa gengur og afhenda þér blóm þegar vel gengur."

„Hann er mjög jarðbundinn strákur og fer ekki of langt niður þegar illa gengur og ekki of hátt uppi þegar að vel gengur. Hann er að uppskera mikla vinnu og lengi má það halda áfram af því að ég held að „level“ hans sé ennþá hærra. Ég talaði um áðan að vonandi fáum við að sjá hann og fleiri af okkur strákum bara á allra hæsta „leveli“."

Fyrsta hugsun að henda öllum heim - „Þetta voru bara svik“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.