Fotbolti.net
08.11.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Styðja eins árs gamla dóttur De Miguel fjárhagslega

Styðja eins árs gamla dóttur De Miguel fjárhagslega
Canon

Mynd: CD Tenerife

Tenerife hefur skuldbundið sig til að styðja fjárhagslega við eins árs dóttur Jesus de Miguel þar til hún verður 18 ára eftir að faðir hennar lést á þriðjudag.
Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni
TENGT EFNI

Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni

De Miguel var leikmaður Tenerife í næst efstu deild á Spáni. Þessi 30 leikmaður lést á dögunum eftir að Jesus Owono, markvörður Andorra, keyrði harkalega í hann með þeim afleiðingum að De Miguel fékk hné markvarðarins í brjóstkassann.

Antonio Manuel Porro Granados, forstjóri Tenerife, staðfesti í samtali við The Athletic að félagið ætli að aðstoða fjölskylduna hans.

Hann segir að félagið sé tilbúið að gera allt fyrir dóttur hans til að auðvelda henni lífið eins vel og hægt er miðað við þessar hræðilegu aðstæður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.