Fotbolti.net
07.11.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Guler frábær í sigri Real Madrid

Spánn: Guler frábær í sigri Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid vann öruggan sigur á Valencia í spænsku deildinni í kvöld.

Federico Valverde kom Real Madrid yfir. Kylian Mbappe átti skot í varnarvegginn úr aukaspyrnu og boltinn barst til Valverde sem skoraði í fjærhornið.

Arda Guler bætti síðan öðru markinu við áður en Kylian Mbappe innsiglaði sigurinn eftir sendingu frá Guler.

Jose Gaya, leikmaður Valencia, fékk síðan rautt spjald stuttu síðar fyrir að brjóta á Mbappe þegar hann var að komast í góða stöðu en þá voru úrslitin ráðin. Real Madrid er í 2. sæti með 30 stig eftir 12 umferðir, jafn mörg stig og topplið Barcelona. Valencia er með níu stig í 19. sæti.
Öll úrslit dagsins
Espanyol 0 - 0 Deportivo

Malaga 1 - 2 Racing Santander
1-0 Carlos Dotor ('28 )
1-1 Iker Luque ('50 )
1-2 Yassir Zabiri ('60 )
Rautt spjald: Adam Aznou, Malaga ('64)

Osasuna 1 - 1 Athletic
0-1 Nico Williams ('85 )
1-1 Alejandro Catena ('90 )

Valencia 0 - 3 Real Madrid
0-1 Federico Valverde ('28 )
0-2 Arda Guler ('36 )
0-3 Kylian Mbappe ('75 )
Rautt spjald: Jose Gaya, Valencia ('79)

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid11+1428
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Deportivo12+115
9Racing Santander12-1314
10Alaves12-213
11Villarreal11012
12Celta11012
13Espanyol12-112
14Vallecano10-512
15Getafe11-812
16Osasuna12-1112
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.