Fotbolti.net
08.12.24 - 18:50
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Sjö mörk er Wolfsburg vann baráttusigur á Mainz

Jonas Wind skoraði tvö á lokamínútum leiksins

Jonas Wind skoraði tvö á lokamínútum leiksins

Canon

Mynd: EPA

Danski landsliðsmaðurinn Jonas Wind var hetja Wolfsburg í 4-3 sigrinum á Mainz í þýsku deildinni í dag.
Wolfsburg var að elta allan leikinn. Paul Nebel kom Mainz á bragðið á 11. mínútu en Mohamed Amoura jafnaði metin átta mínútum síðar.

Aftur komst Mainz í forystu er Jonathan Burkardt skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá hægri. Tomas Tiago jafnaði fyrir Wolfsburg á 58. mínútu en Mainz tók enn og aftur forystuna er Nebel gerði annað mark sitt.

Wolfsburg gafst ekki upp. Wind jafnaði á 84. mínútu með góðu skoti úr teignum og tryggði síðan Wolfsburg sigurinn með marki eftir að boltinn datt fyrir hann í teignum eftir aukaspyrnu Max Arnold.

Wolfsburg er í 5. sæti með 21 stig en Mainz í 9. sæti með 19 stig.

Hoffenheim og Freiburg gerðu þá 1-1 jafntefli. Bæði mörkin komu á fimm mínútna kafla í síðari hálfleik.

Varnarmaðurinn Matthias Ginter skoraði af stuttufæri eftir aukaspyrnu en Tom Bischof jafnaði með glæsilegu skoti á nærstöng.

Freiburg er í 7. sæti með 21 stig en Hoffenheim í 14. sæti með aðeins 13 stig.

Hoffenheim 1 - 1 Freiburg
0-1 Matthias Ginter ('68 )
1-1 Tom Bischof ('73 )

Wolfsburg 4 - 3 Mainz
0-1 Paul Nebel ('11 )
1-1 Mohamed Amoura ('19 )
1-2 Jonathan Michael Burkardt ('39 )
2-2 Tomas Tiago ('58 )
2-3 Paul Nebel ('66 )
3-3 Jonas Wind ('84 )
4-3 Jonas Wind ('90 )

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.