Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 09. janúar 2021 06:00
Aksentije Milisic
Real lánar Kubo til Getafe (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hinn ungi og efnilegi Takefusa Kubo var á láni hjá Villareal frá Real Madrid á fyrri hluta þessarar leiktíðar.

Kubo gekk illa að fá tækifæri hjá Villareal og því vildi hann ekki lengur vera hjá liðinu. Real ákvað að kalla Japanann til baka og lána hann svo til Getafe.

Unai Emery, þjálfari Villareal, sagði að Kubo vildi fara annað þar sem hann fengi að spila og Emery sýndi því skilning. Villareal hefur spilað vel á þessari leiktíð og er í baráttunni um Meistaradeildarsæti á meðan Getafe er í fallbaráttu.

Kubo verður því hjá Geta út þessa leiktíð og spurning hvort hann fái ekki fleiri mínútur þar heldur en hjá Villareal og hjálpi Getafe að halda sæti sínu í deild þeirra bestu á Spáni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner