Leiknir Reykjavík byrjaði vel í Fótbolta.net mótinu í gær er þeir unnu sigur gegn HK. Leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi.
                
                
                                    Gestirnir skoruðu tvívegis á tíu mínútna kafla í fyrri hálfleik og bættu síðan við tveimur til viðbótar í þeim síðari.
Það vakti mikla athygli að í leikmannahópi Leiknis var hinn 13 ára gamli Karan Gurung. Hann kom við sögu og gerði sér lítið fyrir og skoraði.
Það er ljóst er að þarna er á ferðinni mjög efnilegur leikmaður. Hann er fæddur árið 2008.
Leiknir spilar næsta sumar í Pepsi Max-deildinni - annað árið í röð - og verður fróðlegt að sjá hvort Karan muni koma eitthvað þar við sögu.
 
                    Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
        
 
         
     
                    
        
         
                        
        
         
                                                                        
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                
