Fotbolti.net
21.09.26 - 19:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Formaðurinn í draumaheimi: Þeir sem komu okkur upp fá að njóta ávinningsins

Karlaliðið upp í Bestu deildina.

Karlaliðið upp í Bestu deildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Síðustu vikur hafa gengið vel í Laugardalnum. Kvennaliðið varð bikarmeistari um þar síðustu helgi og á laugardag tryggði karlaliðið sér sæti í Bestu deildinni með sigri í úrslitaleik Lengjudeildarumspilsins.

Fótbolti.net ræddi við Kristján Kristjánsson sem er formaður fótboltadeildar Þróttar.
Venni: Búið að sitja í manni hrottalega lengi
TENGT EFNI

Venni: Búið að sitja í manni hrottalega lengi

„Þessi rúma viku hefur verið draumi líkust, það er óhætt að segja það. Það er alltaf gaman að vera Þróttari en það er sérstaklega gaman þessa dagana," segir Kristján.

Gefur það auka að það séu margir uppaldir Þróttarar að spila í Lengjudeildarumspilinu?

„Það hefur gengið betur að þróa leikmenn strákamegin og það voru sjö uppaldir Þróttarar að byrja úrslitaleikinn. Þetta er okkar stefna, að keyra á uppöldum leikmönnum, og það hefur gengið vel. Við erum hæstánægðir með þann þátt. Þetta eru ekki leikmenn í aukahlutverkum heldur eru okkar aðalleikmenn þeir sem við ölum upp sjálfir."

Þeir sem náðu árangrinum munu fá að njóta ávinningsins
Er eitthvað orðið ljóst varðandi framhaldið karlamegin, eitthvað frágengið með framlengingar?

„Nei, við erum svona rétt að melta þetta. Venni verður áfram, hann hefur ekki nefnt annað og ekki höfum við nefnt annað. VIð ætlum að vinna áfram saman. Svo skoðum við allt annað í rólegheitum."

„Meginstefnan er samt sú að þeir leikmenn sem hafa afrekað það sem við höfum afrekað eiga að fá að njóta ávinningsins sem er sá að spila í Bestu deildinni. Við erum ekki að fara gera einhverjar massífar breytingar á liðinu. Við munum ekki gera eitthvað, en engar róttækar breytingar á hópnum."


Ekkert nema gott um Venna að segja
Sigurvin Ólafsson, Venni, tók við Þrótti eftir tímabilið 2023. Hvað er hægt að segja um hann og hans starf síðustu ár?

„Það sem skiptir mestu máli er að hann er góður og gegnheill, heiðarlegur, sanngjarn, réttsýnn, duglegur og klókur þjálfari. Hann er góður í mannlegum samskiptum, góður að díla við leikmennina og á gott með að laða leikmenn að sér og fá þá til að fylkja sér um sameiginleg markmið. Ég hef ekkert nema gott um hann að segja."

„Hann hefur staðið sig frábærlega vel í þessi þrjú ár. Við lögðum upp með honum í upphafi að við myndum vilja spila á sem flestum yngri Þrótturum og hann hefur fylgt þeirri stefnu og búið til frábært lið sem við erum mjög stolt af. Hann er 'no-nonsense' náungi, vinnur vel og gerir það sem hann gerir af krafti."

„Ég hef gert grín að honum, hringdi í hann og sagði honum að ég ætlaði að kæra hann fyrir að vera ofstopamaður - því allir vita að hann er mjög rólegur og yfirvegaður,"
segir Kristján og hlær. „Það er mikill kostur og í þessari síðustu hrinu var mikill kostur hvað hann er yfirvegaður og getur tekið góðar ákvarðanir þó að það sé pressa."

Leyst strax vel á að stefna upp um deild
„Við lögðum upp þegar hann kom fyrst að við ætluðum okkur upp í efstu deild, vorum ekkert endilega með það á þriggja ára plani en honum leyst strax vel á það og við höfum unnið að því stanslaust síðan. Fyrsta árið vorum við í sjöunda sæti sem var kannski ekkert sérstakt sæti en stigafjöldinn var allt í lagi. Í fyrra vorum við svo í hreinum úrslitaleik sem við töpuðum. Núna náðum við mjög góðri úrslitakeppni og greinilegt að liðið hafði lært af árinu áður og þjálfarinn örugglega líka. Við mættum miklu ákveðnari til leiks í umspilinu í ár heldur en í fyrra," segir formaðurinn að lokum.
Kvennaliðið vann Mjólkurbikarinn.

Kvennaliðið vann Mjólkurbikarinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristján Kristjánsson (í vestinu) er formaður fótboltadeildar og Bjarnólfur Lárusson er formaður aðalstjórnar.

Kristján Kristjánsson (í vestinu) er formaður fótboltadeildar og Bjarnólfur Lárusson er formaður aðalstjórnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurvin Ólafsson hefur gert góða hluti með lið Þróttar.

Sigurvin Ólafsson hefur gert góða hluti með lið Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Meginstefnan er samt sú að þeir leikmenn sem hafa afrekað það sem við höfum afrekað eiga að fá að njóta ávinningsins sem er sá að spila í Bestu deildinni.

Meginstefnan er samt sú að þeir leikmenn sem hafa afrekað það sem við höfum afrekað eiga að fá að njóta ávinningsins sem er sá að spila í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.