Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   mán 09. febrúar 2026 16:58
Elvar Geir Magnússon
Næstum 500 daga bið eftir klippingu gæti lokið á morgun
Mynd: The United Strand
Hinn hárprúði Frank Ilett gæti komist í klippingu á morgun en þá þarf Manchester United að vinna West Ham.

Ilett, þekktur sem The United Strand, hefur hlotið heimsfrægð á samfélagsmiðlum eftir að hann gaf það út að hann myndi ekki klippa hár sitt nema ef Manchester United myndi vinna fimm leiki í röð.

United hefur unnið fjóra í röð eftir að Michael Carrick tók við og 492 daga bið Ilett eftir klippingu gæti lokið á morgun.

Carrick sagði í viðtali í dag að hann væri meðvitaður um þetta loforð Ilett en það væri þó ekki forgangsmál að hann komist í klippingu.

„Krakkarnir mínir hafa sýnt mér þetta. Það er samt alls ekki að fara inn í ræðuna fyrir leik eða eitthvað slíkt. Ég hef gaman að þessu en þetta breytir ekki neinu hjá okkur," segir Carrick en mótherjar morgundagsins eru í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.

Illett byrjaði að safna hári áður en Rúben Amorim tók við stjórnartaumunum á Old Trafford.




Athugasemdir
banner
banner