Líklegt er að Liverpool fari ekki í æfingaferð utan Evrópu í sumar. Undanfarin tíu ár hefur Liverpool alltaf farið í eina ferð fyrir utan Evrópu en svo verður ekki í ár.
Liverpool var í viðræðum fyrr í vetur um að fara til Kína en eftir kórónu veiruna verður ekkert að því.
Liverpool var í viðræðum fyrr í vetur um að fara til Kína en eftir kórónu veiruna verður ekkert að því.
Margir leikmenn Liverpool spila á EM og í Copa Ameria í sumar og því vill Jurgen Klopp, stjóri liðsins, ekki fara langt í burtu í æfingaferð.
Klopp ætlar þess í stað að fara með sína menn í æfingaferð innan Evrópu en The Athletic greinir frá þessu í dag.
Liverpool fór til Bandaríkjanna í æfingaferð í fyrra og þrátt fyrir að ferðir utan Evrópu geti hjálpað liðinu tekjulega þá ætlar Klopp að halda sínum mönnum í Evrópu í ár.
Athugasemdir