Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 17:00
Kári Snorrason
Alisson fjarri góðu gamni og ferðaðist ekki með til Istanbúl
Mynd: EPA
Alisson Becker verður ekki í leikmannahóp Liverpool sem mætir tyrkneska liðinu Galatasary í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Alisson tók þátt í æfingu í dag en fann fyrir óþægindum og verður því ekki tekinn áhætta með hann. Federico Chiesa er sömuleiðis utan hóps. Félagið tilkynnti 21 manns ferðahóp fyrr í dag.

Georgíumaðurinn Giorgi Mamardashvili mun því að öllum líkindum standa á milli stanganna í Istanbúl á morgun. Hann hefur spilað ellefu leiki á tímabilinu.

Liverpool heimsótti Galatasary í deildarkeppni Meistaradeildarinnar fyrr í vetur. Mamardashvili stóð þá í markinu og unnu Tyrkirnir 1-0 sigur með marki frá Victor Osimhen úr vítaspyrnu.


Athugasemdir
banner