Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 18:47
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið West Ham og Brentford: Gestirnir með sterkt lið
Hákon Rafn á bekknum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Síðasti leikur 16-liða úrslita enska bikarsins fer fram í kvöld þegar West Ham United og Brentford mætast í Lundúnaslag.

Sigurvegari kvöldsins tryggir sér sæti meðal 8 síðustu liða keppninnar og verður dregið í 8-liða úrslitin fyrir upphafsflautið.

Nuno Espírito Santo þjálfari West Ham gerir sjö breytingar á liðinu sem vann á útivelli gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í síðustu viku. Hamrarnir eru augljóslega einbeittir að því að forðast fall úr úrvalsdeildinni og vilja því ekki leggja of mikið púður í bikarinn.

Axel Disasi, Mateus Fernandes, Tomas Soucek og Jarrod Bowen halda sætum sínum í byrjunarliðinu og eru Pablo, Adama Traoré og Mohamadou Kanté meðal leikmanna sem fá tækifæri í byrjunarliðinu. Crysencio Summerville sest á bekkinn eftir að hafa borið sóknarleik Hamranna á herðum sér undanfarnar vikur.

Keith Andrews þjálfari Brentford gerir aðeins þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem gerði markalaust jafntefli við Bournemouth í síðustu viku og mætir til leiks með afar sterkt lið.

Keane Lewis-Potter, Kristoffer Ajer og Yehor Yarmoliuk koma inn í byrjunarliðið fyrir Sepp van den Berg og Mathias Jensen sem setjast á bekkinn. Rico Henry er ekki með vegna meiðsla, en hann er einn af sjö leikmönnum sem eru á meiðslalista Brentford.

Hákon Rafn Valdimarsson hefur verið bikarmarkvörður Brentford til þessa, en Caoimhín Kelleher tekur sætið af honum fyrir þennan mikilvæga leik gegn West Ham.

West Ham: Areola, Walker-Peters, Mavropanos, Disasi, Scarles, Soucek, Fernandes, Kante, Bowen, Traore, Pablo.
Varamenn: Herrick, Kilman, Summerville, Wilson, Taty, Magassa, Wan-Bissaka, Potts, Mayers.

Brentford: Kelleher, Lewis-Potter, Collins, Ajer, Kayode, Henderson, Yarmoliuk, Damsgaard, Schade, Ouattara, Thiago
Varamenn: Valdimarsson, Van den Berg, Pinnock, Jensen, Donovan, Furo, Bentt, Shield, Stephenson
Athugasemdir
banner
banner