Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 19:28
Ívan Guðjón Baldursson
Dregið í enska bikarnum: Man City mætir Liverpool
Mynd: EPA
Búið er að draga í 8-liða úrslit enska bikarsins og er stórleikur á dagskrá á Etihad leikvanginum þegar Manchester City fær Liverpool í heimsókn laugardaginn 4. apríl.

Þar munu tvö stórveldi kljást en þau eru að mætast í þriðja sinn á tímabilinu. Hingað til hefur Man City unnið báðar innbyrðisviðureignirnar eftir að Liverpool vann þær báðar á síðustu leiktíð.

Chelsea fær auðveldasta andstæðinginn þegar Port Vale kíkir í heimsókn á Stamford Bridge. Port Vale vermir botnsæti þriðju efstu deildar enska boltans á meðan Chelsea er rúmlega 60 sætum ofar, í baráttu um sæti í Meistaradeildinni.

Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur, heimsækir þá Championship-lið Southampton í 8-liða úrslitunum á meðan West Ham eða Brentford taka á móti Leeds United í úrvalsdeildarslag.

Það eru því aðeins tveir úrvalsdeildarslagir á dagskrá í 8-liða úrslitunum.

8-liða úrslit
Manchester City - Liverpool
Chelsea - Port Vale
Southampton - Arsenal
West Ham eða Brentford - Leeds United
Athugasemdir
banner
banner