Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   mán 09. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - West Ham mætir Brentford
Crysencio Summerville hefur verið í miklu stuði á nýju ári.
Crysencio Summerville hefur verið í miklu stuði á nýju ári.
Mynd: EPA
Síðasti leikur 16-liða úrslita enska bikarsins fer fram í kvöld þegar West Ham United og Brentford eigast við í Lundúnaslag.

Mikil eftirvænting er fyrir þennan úrvalsdeildarslag þar sem liðin freista þess að tryggja sér þátttökurétt meðal 8 síðustu keppenda mótsins.

Brentford vann báðar innbyrðisviðureignir liðanna á síðasta dagatalsári á London Stadium, en þetta er í þriðja sinn í röð sem liðin mætast í innbyrðisviðureign á heimavelli Hamranna.

Til gamans má geta að bæði lið eiga tvo sigra, tvö jafntefli og eitt tap í síðustu fimm leikjum í öllum keppnum.

Leikur kvöldsins
19:30 West Ham - Brentford
Athugasemdir
banner