Rodri þénar um 220 þúsund pund á viku og ætti því ekki að vera í miklum erfiðleikum með að greiða sektina.
Rodri hefur verið sektaður um 80.000 pund, rúmar þrettán milljónir króna, vegna ummæla sinna í viðtali eftir 2-2 jafntefli Manchester City gegn Tottenham í febrúar.
Í viðtali eftir leik sakaði Rodri dómarann Robert Jones um að hafa ekki sýnt hlutdrægni. Hann var ósáttur við að mark Dominic Solanke hafi fengið að standa eftir að Solanke virtist sparka í gegnum fótinn á varnarmanninum Marc Guehi.

Rodri var í kjölfarið sakaður af enska fótboltasambandinu (FA) um að hafa sýnt ósæmilega hegðun með ummælum sem gefa í skyn hlutdrægni og draga í efa heilindi dómara.
Reglugerðarnefnd FA sagði að Rodri hefði sent tvö bréf sem hluta af gögnum sínum í málinu.
Í fyrra bréfinu sagði hann að ummæli sín hefðu verið misskilin og rangtúlkuð af sumum fjölmiðlum. En í því síðara viðurkenndi hann að þau hefðu verið óviðeigandi.
Athugasemdir