Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 16:00
Kári Snorrason
Landsliðsþjálfari Írak hvetur FIFA til að fresta HM umspilinu
Mynd: EPA
Graham Arnold, landsliðsþjálfari Íraks, hefur hvatt FIFA til þess að fresta úrslitaleik liðsins í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu vegna stríðsátaka við Íran.

Írak á að mæta annaðhvort Súrínam eða Bólivíu í úrslitaleik um sæti á HM þann 31. mars í Monterrey í Mexíkó.

Undirbúningur liðsins hefur hins vegar raskast verulega vegna átakanna. Margir leikmenn Íraks ekki fengið vegabréfsáritanir til Mexíkó þar sem sendiráð í Írak hafa neyðst til að loka.

Arnold sjálfur er einnig fastur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum vegna ástandsins. Hann segir ekki raunhæft að stilla upp liði sem eingöngu er skipað leikmönnum sem leika erlendis.

Þjálfarinn leggur til að umspilsleiknum verði frestað þar til viku fyrir heimsmeistaramótið. Jafnframt er óvissa um þátttöku Írans á HM vegna átaka þeirra við Bandaríkin sem eru meðal gestgjafa mótsins.
Athugasemdir
banner