Mbappé hefur verið öflugur á tímabilinu. Hann er með 38 mörk og 6 stoðsendingar í 33 leikjum í öllum keppnum.
Real Madrid tekur á móti Manchester City í risaslag í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu komandi miðvikudagskvöld.
Bæði lið hafa verið að glíma við eitthvað af meiðslum að undanförnu og er óljóst hvort ofurstjarnan Kylian Mbappé geti tekið þátt.
Búist var við að Mbappé yrði frá keppni þar til í næstu viku en hann er byrjaður að æfa aftur með leikmannahópi Real Madrid fyrr en áætlað var. Ekki er ljóst hvort Mbappé verði með í hóp gegn City.
Bakvörðurinn Álvaro Carreras verður ekki með gegn City eftir að hafa orðið fyrir vöðvameiðslum, en hann er búinn að eigna sér vinstri bakvarðarstöðu liðsins. Ferland Mendy og Fran García eru fyrir aftan hann í goggunarröðinni.
Óljóst er hvort Carreras verði klár í slaginn fyrir seinni leik liðanna í Manchester í næstu viku.
08.03.2026 08:00
Haaland og Vinícius klárir í slaginn
Athugasemdir


