Manchester City er í leit að nýjum hægri bakverði og hefur verið sterklega orðað við Tino Livramento, 23 ára bakvörð Newcastle United.
Livramento er hægri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað vinstra megin. Hann hefur fest sig í sessi sem mikilvægur byrjunarliðsmaður hjá Newcastle undir stjórn Eddie Howe og er búinn að spila þrjá A-landsleiki fyrir England.
Livramento, sem er uppalinn hjá Chelsea, var lykilmaður upp yngri landslið Englands og segja enskir fjölmiðlar að City sé reiðubúið til að borga um 70 til 80 milljónir punda til að kaupa hann í sínar raðir.
Livramento er sókndjarfur bakvörður með rúmlega tvö ár eftir af samningi sínum við Newcastle.
Fabrizio Romano greinir frá því að Man City hefur ekki hafið viðræður um Livramento. Hann staðfestir þó að félagið sé í leit að nýjum bakverði og sé mjög hrifið af Livramento eftir að hafa mistekist að kaupa hann í fyrra.
Athugasemdir


