09.04.15 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Donna og Summer í Selfoss (Staðfest)

Donna-Kay Henry í leiknum í gærkvöldi.

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Donna-Kay Henry í leiknum í gærkvöldi.

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Selfoss hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar.
Sóknarmaðurinn Donna-Kay Henry og varnarmaðurinn Summer Williams eru komnar til félagsins.
Henry er 24 ára gömul og lék í fyrra sína fyrstu landsleiki fyrir landslið Jamaica. Williams er 25 ára miðvörður sem hefur meðal annars leikið á Írlandi en þetta kemur fram á Sunnlenska.is.
Þær voru báðar í leikmannahópi Selfoss í Lengjubikarnum gegn Fylki í gærkvöldi og gerði Henry sér lítið fyrir og skoraði öll mörk Selfoss í 3-1 sigri.
,,Donna-Kay er hröð og tæknilega mjög góð. Summer er miðvörður frá Bandaríkjunum en hún var í UCLA á sínum tíma og er sterkur leikmaður,\" sagði Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfoss, í samtali við sunnlenska.is.
Áður var markvörðurinn Chante Sandiford gengin í raðir Selfoss. “Við verðum ekki með fleiri útlendinga í ár og kjarninn í liðinu verður áfram stór og góður hópur af heimakonum,\" sagði Gunnar við Sunnlenska.

Heimild: Sunnlenska.is