Fotbolti.net
09.05.21 - 18:00
Victor Pálsson

Þýskaland: Markalaust í fallbaráttuslag

Þýskaland: Markalaust í fallbaráttuslag
Canon

Mynd: Getty Images

Hertha Berlin 0 - 0 Arminia Bielefeld
Það fór fram fallslagur í þýsku Bundesligunni í kvöld þegar Hertha Berlin og Arminia Bielefeld áttust við á heimavelli þess fyrrnefnda.

Bæði lið voru með 30 stig í töflunni fyrir viðureignina og sat Bielefeld í 16. sæti eða fallsæti. Hertha var sæti ofar og því mikið í húfi.

Liðin voru ekki að taka mikla sénsa í þessum leik sem endaði með markalausu jafntefli og voru mörkin engin.

Eitt stig gerir ekki of mikið fyrir þessi lið sem eru bæði með 31 stig. Werder Bremen er einnig með 31 stig og ljóst að baráttan um að halda sæti sínu í deildinni verður afar hörð.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Freiburg5+1013
2Dortmund5+713
3Bayern5+1211
4Leverkusen5+610
5RB Leipzig5+109
6Augsburg5+58
7Werder508
8Mainz5+37
9Elversberg507
10Köln5-27
11Stuttgart5-16
12Hamburger5-106
13Schalke 045-25
14Frankfurt5-75
15Paderborn5-44
16Union Berlin5-124
17Hoffenheim5-43
18Gladbach5-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.