Fotbolti.net
09.05.26 - 15:30
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Man City og Brentford: Khusanov ekki með - Tvær breytingar hjá gestunum

Abdukodir Khusanov er ekki með Man City í dag

Abdukodir Khusanov er ekki með Man City í dag

Canon

Mynd: EPA

Manchester City tekur á móti Brentford í 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Etihad-leikvanginum klukkan 16:30 í dag.
Abdukodir Khusanov, varnarmaður Man City, er ekki með liðinu í dag og kemur Nathan Aké í hans stað. Tijjani Reijnders kemur þá inn á miðjuna í stað Nico Gonzalez.

Ruben Dias kemur aftur inn í leikmannahópinn en Rodri er áfram frá vegna meiðsla.

Tvær breytingar eru gerðar á liði Brentford. Aaron Hickey kemur inn fyrir Dango Ouattara og þá kemur Kristoffer Ajer í stað Sepp van den Berg í vörninni.

Man City getur saxað forystu Arsenal niður í tvö stig með sigri á Brentford á meðan Lundúnaliðið er áfram í baráttu um að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð.

Man City: Donnarumma, Nunes, Guehi, Ake, O'Reilly, Silva, Reijnders, Semenyo, Doku, Cherki, Haaland.

Brentford: Kelleher, Kayode, Hickey, Ajer, Collins, Lewis-Potter, Jensen, Yarmoliuk, Schade, Damsgaard, Thiago.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.