Fotbolti.net
09.05.26 - 17:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Colwill frábær í endurkomunni - „Besti maður vallarins"

Colwill frábær í endurkomunni - „Besti maður vallarins"
Canon

Mynd: EPA

Chelsea gerði markalaust jafntefli gegn Liverpool á Anfield í dag. Calum McFarlane, bráðabirgðastjóri Chelsea, hrósaði Levi Colwill í hástert fyrir frammistöðu sína.

Colwill var að spila annan leikinn sinn í röð og í fyrsta sinn síðan hann sleit krossband fyrir níu mánuðum síðan sem hann spilar allan leikinn.
„Hann var líklega besti maður vallarins að mínu mati. Hann færir okkur þann möguleika að verjast maður á mann í öftustu línu. Það er frábært jafnvægi hvað varðar uppbygginguna. Hann gerði allt á mjög háu stigi í dag. Fyrsti leikurinn í tæpt ár. Það segir margt um karakterinn hans og hver hann er," sagði McFarlane.

Chelsea náði í sitt fyrsta stig í síðustu sjö deildarleikjum en liðið er fjórum stigum frá Evrópusæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.