Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 09. júní 2021 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Eftirsóttur kantmaður vill vinna með Klopp
Khvicha Kvaratskhelia
Khvicha Kvaratskhelia
Mynd: Getty Images
Georgíski landsliðsmaðurinn Khvicha Kvaratskhelia hefur mikinn áhuga á því að vinna með Jürgen Klopp hjá Liverpool en hann er eftirsóttur af stórum klúbbum í Evrópu.

Kvaratskhelia er 20 ára gamall kantmaður og spilar með Rubin Kazan í Rússlandi en hann skoraði 4 mörk og lagði upp 8 á tímabilinu.

Hann getur einnig spilað á vængjunum en það þykir líklegt að hann yfirgefi Rubin í sumar.

Fjölmörg félög eru á eftir kappanum en Bayern München lýsti yfir áhuga á honum í apríl og þá hefur Leeds verið í viðræðum við rússneska félagið um kaup á Kvaratskhelia.

Leikmaðurinn vill þó mest af öllu vinna með Klopp hjá Liverpool en hann sagði frá þessu í viðtali við georgíska miðilinn Sportsall.

„Ég get ekki staðfest neitt á þessum tímapunkti en ég er í viðræðum við nokkur félög og þetta er svona að skýrast. Það hafa verið viðræður við Leeds og það er möguleiki á að þær viðræður haldi áfram en mest spennandi kosturinn er að vinna með Jürgen Klopp," sagði Kvaratskhelia.
Athugasemdir
banner
banner
banner