Ísland 1 - 6 Spánn
0-1 Vicky López ('5)
0-2 Edna Imade ('37)
0-3 Salma Paralluelo ('45)
0-4 Vicky López ('50)
1-4 Linda Líf Boama ('58)
1-5 Cllaudia Pina ('68)
1-6 Aitana Bonmatí ('84)
0-1 Vicky López ('5)
0-2 Edna Imade ('37)
0-3 Salma Paralluelo ('45)
0-4 Vicky López ('50)
1-4 Linda Líf Boama ('58)
1-5 Cllaudia Pina ('68)
1-6 Aitana Bonmatí ('84)
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 6 Spánn
Ísland tók á móti Spáni í lokaleiknum í riðlakeppni Evrópuþjóða sem eru að berjast um sæti á lokamóti HM.
Stelpurnar okkar voru einungis að spila upp á stoltið enda öruggar með þriðja sæti riðilsins, á meðan heimsmeistararnir frá Spáni þurftu sigur til að tryggja toppsætið. Sú varð raunin.
Ísland sá aldrei til sólar gegn ógnarsterkum andstæðingum og var staðan 0-3 í leikhlé. Vicky López, Edna Imade og Salma Paralluelo skoruðu mörkin.
López bætti öðru marki sínu við í upphafi síðari hálfleiks áður en Linda Líf Boama skoraði fánamark Íslands eftir vel útfærða skyndisókn á 58. mínútu. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gerði vel að vinna boltann og gefa frábæra sendingu á Lindu sem kláraði af mikilli fagmennsku.
Þær spænsku voru þó áfram betri og héldu áfram að nýta mistökin sem Ísland gerði í leiknum. Claudia Pina og Aitana Bonmati áttu báðar eftir að skora til að innsigla stórsigur. Lokatölur 1-6.
Spánn endar því á toppi riðilsins, England í öðru sæti, Ísland í þriðja og Úkraína að lokum í því fjórða.
08.06.2026 16:49
Steini og Glódís fyrir Spánarleikinn: „Fórum í svona fokk it gír gegn Englandi og þurfum að vera ennþá betri núna“



