Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. júní 2026 13:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ögmundur um Val: Hefði kannski ekki átt að gera það
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ögmundur Kristinsson var í tæp tvö ár á mála hjá Val. Hann samdi við félagið sumarið 2024 eftir um áratug erlendis sem atvinnumaður. Hann átti að taka við sem aðalmarkvörður af Frederik Schram sem var að renna út á samningi.

Það fór ekki alveg eins og Ögmundur hafði óskað sér, en hann spilaði einungis ellefu leiki í Bestu deildinni fyrir Val áður en hann náði samkomulagi um starfslok hjá félaginu í síðustu viku. Í kjölfarið samdi hann svo við Víking.

Ögmundur ræddi við Fótbolta.net um tímann hjá Val.

„Þetta voru aðeins skrítnar vikur eftir að ég hætti að æfa hjá Val, en ég fann alveg þegar Kári hringdi að mig langaði ennþá að vera í fótbolta og keppa að einhverju."

„Nei, fótboltinn var aldrei búinn fyrir mér, það var ekkert af minni hálfu að vilja hætta hjá Val eða eitthvað svoleiðis. Svo tók Valur einhverja ákvörðun,"
sagði Ögmundur í fyrri hluta viðtalsins sem birtur var fyrr í dag. En hvernig myndi hann gera upp tímann á Hlíðarenda?

„Klefinn var mjög góður, ég þakka strákunum fyrir tímann. Þetta var erfitt fyrir mig, ég kom inn og meiðist illa í byrjun ársins í fyrra. Ég reyndi eins og ég gat að gefa af mér og hjálpa liðinu með því að æfa meiddur og alls konar svoleiðis. Eftir á að hyggja hefði ég kannski ekki átt að gera það, en maður vildi samt bara gefa af sér og reyna. Það fór bara eins og fór, ég var meiddur og það var leiðinlegt. Þetta var pínu svekkjandi tími yfir höfuð," segir Ögmundur.

Hann er heill heilsu í dag og tilbúinn að spila fótbolta. Hann fór til Japans í lok síðasta mánaðar með landsliðinu, það var hans fyrsta landsliðsverkefni i fimm ár.

„Ferðin sem slík var skemmtileg, en grátlega leiðinlegt að ná ekki í úrslit. Við spiluðum 'solid' leik á móti gríðarlega sterku japönsku liði. Ferðin var flott og það var skemmtilegt að sjá Japan og menninguna þar," segir markvörðurinn. Japan sigraði Ísland, 1-0 lokatölur þar sem sigurmark heimamanna kom undir lokin.
Slapp