Fotbolti.net
04.06.26 - 09:11
Elvar Geir Magnússon

Ögmundur laus allra mála og á leið í Víking

Ögmundur Kristinsson.

Ögmundur Kristinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur tilkynnt að markvörðurinn Ögmundur Kristinsson sé laus allra mála en hann og félagið hafa komist að samkomulagi um starfslok.

Ögmundur sem gekk til liðs við Val um mitt tímabil 2024 var samningsbundinn félaginu út tímabilið 2027. Hann lék alls ellefu leiki í efstu deild fyrir Val.

„Valur þakkar Ögmundi fyrir hans framlag og óskar honum alls hins besta í framtíðinni," segir í tilkynningu Vals.

Ögmundur, sem er 36 ára, er að öllum líkindum á leið til Íslandsmeistara Víkings sem sótti um undanþágu til að sækja markvörð utan glugga. Ögmundur hefur leikið nítján landsleiki fyrir Ísland og var varamarkvörður í vináttulandsleiknum gegn Japan á dögunum.
Umsókn Víkinga um undanþágu send til baka - „Algjörlega fáránlegt ef þetta fer ekki í gegn“
TENGT EFNI

Umsókn Víkinga um undanþágu send til baka - „Algjörlega fáránlegt ef þetta fer ekki í gegn“

Ögmundur hefur ekkert spilað með Val á tímabilinu og hann var úti í kuldanum. Honum var tjáð á Hlíðarenda að krafta hans yrði ekki óskað og nú hefur náðst samkomulag um starfslok.

Aron Snær Friðriksson, sem kom til Víkings frá Njarðvík fyrir tímabilið, hefur varið mark Víkings síðan Ingvar Jónsson greindist með krabbamein. Víkingur trónir á toppi Bestu deildarinnar.
Aron Snær Friðriksson.

Aron Snær Friðriksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.