Landsliðsmaðurinn Ögmundur Kristinsson er genginn í raðir Víkings, markvörðurinn skrifar undir samning sem gildir út þetta tímabil. Ögmundur kemur í Víkina eftir að hafa samið um starfslok við Val á dögunum.
Víkingur fékk undanþágu frá KSÍ fyrir félagaskiptum Ögmundar þar sem liðið var í markvarðakrísu; Aron Snær Friðriksson var eini leikfæri markvörður liðsins. Fótbolti.net ræddi við nýjasta leikmann Víkings.
Víkingur fékk undanþágu frá KSÍ fyrir félagaskiptum Ögmundar þar sem liðið var í markvarðakrísu; Aron Snær Friðriksson var eini leikfæri markvörður liðsins. Fótbolti.net ræddi við nýjasta leikmann Víkings.
„Það er ekki langt síðan að Kári (Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi) heyrði í mér, og staðan hjá þeim var hún eins og hún var, hræðilegt auðvitað með Ingvar og svo hafði annar markmaður meiðst. Kári kannaði stöðuna á mér, hvort þetta væri eitthvað sem ég hefði áhuga á."
„Já, ég var strax seldur. Þetta voru aðeins skrítnar vikur eftir að ég hætti að æfa hjá Val, en ég fann alveg þegar Kári hringdi að mig langaði ennþá að vera í fótbolta og keppa að einhverju. Ég þekki Kára vel og það var um að gera að vera jákvæður á þetta á meðan maður getur ennþá gefið af sér og finnst þetta skemmtilegt."
„Nei, fótboltinn var aldrei búinn fyrir mér, það var ekkert af minni hálfu að vilja hætta hjá Val eða eitthvað svoleiðis. Svo tók Valur einhverja ákvörðun. Ég fór ekkert á stúfana að leita að einhverju, en var alveg opinn fyrir því ef eitthvað kæmi upp. Þetta var svo meðal annars það sem kom upp og ég ákveð að stökkva á þetta."
Ertu mættur til að reyna vinna þér inn sæti í liðinu?
„Ég ætla alveg að veita Aroni „run for his money" í því. Ég er ekki kominn til þess að vera bara sáttur við að sitja á bekknum. En svo ákveður bara Sölvi og þjálfarateymið hvernig þetta verður, en stefnan hjá mér er allavega að leggja mig fram og standa í markinu hjá Víkingi í sumar."
„Það er að sjálfsögðu spennandi að Víkingur sé að keppa á öllum vígstöðvum, það er keppnismaður í mér og ég vil vera keppa á sem flestum vígstöðvum og á eins háu stigi og mögulegt er. Víkingur er eins og staðan er í dag á hæsta leveli á Íslandi og ég hlakka mikið til sumarsins."
Rann blóðið til skyldunnar
Ögmundur þekkir vel til Ingvars Jónssonar sem glímir við krabbamein. Þeir voru liðsfélagar í landsliðinu í mörg ár og voru meðal annars báðir í hópnum sem fór á EM í Frakklandi. Það kallaði til Ögmundar að hjálpa Víkingi í þeirri stöðu sem liðið er í.
„Það kom strax sú hugsun upp hjá mér þegar Kári talaði við mig með það. Ég og Ingvar vorum saman í mörg ár í landsliðinu og búnir að þekkjast síðan við vorum krakkar. Ég vil leggja hönd á plóg þegar ég get það, og auðvitað spilaði það rullu hjá mér," segir Ögmundur.

