Fotbolti.net
09.07.15 - 09:24
Magnús Már Einarsson

Birkir Bjarna til Basel (Staðfest)

Birkir Bjarna til Basel (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svissneska félagið Basel hefur keypt Birki Bjarnason frá Pescara á Ítalíu.

Birkir skrifaði undir þriggja ára samning hjá Basel sem varð svissneskur meistari á síðasta tímabili.
Birkir hefur verið orðaður við Torino, Leeds og fleiri félög í sumar en nú er ljóst að hann spilar í Sviss á komandi tímabili.

Birkir hefur verið á mála hjá Pescara síðan árið 2012 en tímabilið 2013/2014 spilaði hann með Sampdoria.

Leikmenn frá 50 löndum hafa spilað með Basel í gegnum tíðina en Birkir er fyrsti Íslendingurinn sem gerir það.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.