09.07.15 - 07:00
Arnar Geir Halldórsson
Jem Karacan til Galatasaray (Staðfest)

Jem Karacan

Mynd: Getty Images

Jem Karacan

Mynd: Getty Images
Tyrkneski miðjumaðurinn Jem Karacan er genginn til liðs við Galatasaray en hann kemur á frjálsri sölu frá Reading.
Karacan er fæddur og uppalinn í Englandi en faðir hans er tyrkneskur og hefur Karacan leikið fyrir öll yngri landslið Tyrkja.
Þessi 26 ára gamli leikmaður gerir þriggja ára samning við tyrkneska stórveldið. Hann hefur verið viðloðandi A-landsliðshóp Tyrklands undanfarin ár en á enn eftir að leika sinn fyrsta landsleik.
Karacan á meira en 150 leiki að baki með Reading en hann þótti mikið efni á sínum tíma.
Þetta er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Galatasaray í sumar frá Englandi en Lukas Podolski hafði áður samið við félagið.
Eins og við greindum frá á dögunum hafnaði Kolbeinn Sigþórsson samningstilboði frá Galatasaray og ákvað frekar að ganga til liðs við Nantes í Frakklandi.