09.07.15 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Jónatan Ingi til AZ Alkmaar (Staðfest)

Jónatan Ingi skrifar undir.

Mynd: AZ Alkmaar

Jónatan Ingi skrifar undir.

Mynd: AZ Alkmaar
Hollenska félagið AZ Alkmaar hefur fengið hinn 16 ára gamla Jónatan Inga Jónsson til liðs við sig frá FH.
Jónatan Ingi skrifaði undir þriggja ára samning við AZ eftir að hafa heillað forráðamenn félagsins þegar hann var þar á reynslu.
„AZ er eins og ein stór fjölskylda og félagið er er einnig með besta unglingastarfið í Hollandi,\" sagði Jónatan eftir að hann skrifaði undir.

Jónatan hefur leikið með U17 ára landsliði Íslands en hann var einnig í U15 ára liðinu sem náði í brons á Ólympíuleikum æskunnar í Kína í fyrra.
Árið 2013 gengu Alexander Helgi Sigurðarson og Viktor Karl Einarsson til liðs við unglingalið AZ Alkmaar. Í gær spilaði Alexander sinn fyrsta leik með aðalliði AZ Alkmaar í 8-1 sigri á AFC. Alexander kom inn á í hálfleik þar.

Skrifaði undir 3 ára samning við AZ Alkmaar í Hollandi. Spennandi og mikil vinna framundan. @AZAlkmaar pic.twitter.com/r7T0ETzpCt
— jonatan (@jonataningi) July 9, 2015