09.07.15 - 07:30
Arnar Geir Halldórsson
Logan Bailly til Celtic (Staðfest)

Logan Bailly

Mynd: Getty Images

Logan Bailly

Mynd: Getty Images
Skoska stórliðið Celtic hefur gengið frá kaupum á belgíska markverðinum, Logan Bailly.
Bailly gerir þriggja ára samning við Celtic en hann kemur til félagsins frá belgíska úrvalsdeildarliðinu OH Leuven.
Þessi 29 ára markvörður hefur leikið átta landsleiki fyrir Belgíu en hann lék með Borussia Mönchengladbach í þýsku Bundesligunni áður en hann hélt aftur heim til Belgíu.
Hjá Celtic mun hann keppa við Craig Gordon, fyrrum markvörð Sunderland, um markvarðarstöðuna.
Celtic mætir hingað til lands síðar í mánuðinum og leikur gegn Stjörnunni í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.