Fotbolti.net
09.07.15 - 15:19
Magnús Már Einarsson

Steven Nzonzi til Sevilla (Staðfest)

Steven Nzonzi til Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Sevilla hefur keypt miðjumanninn Steven Nzonzi frá Stoke á sjö milljónir punda.
Hinn 25 ára gamli Nzonzi átti einungis eitt ár eftir af samningi sínum við Stoke City.

Nzonzi var valinn besti leikmaður Stoke á síðasta tímabili og hann kemur til með að styrkja Sevilla.

Leicester reyndi að fá hann í sínar raðir á dögunum en án árangurs og nú liggur leið Nzonzi til Spánar.

Nzonzi kom til Stoke árið 2012 eftir að hafa áður leikið með Blackburn í þrjú ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.