Fotbolti.net
09.07.26 - 10:02
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Evrópuleikir hjá Vestra og Stjörnunni

Vestramenn eru í Aserbaísjan.

Vestramenn eru í Aserbaísjan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri og Stjarnan eiga Evrópuleiki í dag, Vestramenn eru í Aserbaísjan en Stjörnumenn taka á móti Víkingi frá Færeyjum í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Leikur Qarabag og Vestra í forkeppni Evrópudeildarinnar hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma en í Garðabæ verður flautað til leiks klukkan 19:00. Fylgst verður með báðum leikjum í beinum lýsingum hér á Fótbolta.net.

Evrópuleikir:
16:00 Qarabag - Vestri (Bakú)
19:00 Stjarnan - Víkingur Götu (Samsungvöllurinn)
Það er nóg um að vera í íslenska boltanum seinnipartinn þar sem mikið fjör er í efstu deildum kvenna.

Það er mikil spenna í Bestu deildinni eftir að Breiðablik byrjaði að misstíga sig í síðustu leikjum. Blikar eru aðeins með eins stigs forystu á FH og heimsækja Fram á meðan FH tekur á móti Þrótti R.

Þór/KA og Víkingur R. eiga líka heimaleiki og svo eru þrír leikir í Lengjudeildinni.

Haukar og Grótta mætast í toppslag á meðan KR, sem er einnig með í toppbaráttunni, heimsækir Selfoss.

Besta kvenna
18:00 Víkingur R.-ÍBV (Víkingsvöllur)
19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn)
19:15 Þór/KA-Grindavík/Njarðvík (VÍS völlurinn)
19:15 FH-Þróttur R. (Kaplakrikavöllur)

Lengjudeild kvenna
19:15 Haukar-Grótta (BIRTU völlurinn)
19:15 Völsungur-FHL (GPG völlurinn)
19:15 Selfoss-KR (JÁVERK-völlurinn)

5. deild karla - A-riðill
20:00 Skallagrímur-Smári (Skallagrímsvöllur)

5. deild karla - B-riðill
19:15 Léttir-KB (Þarfaþingsvöllurinn)
20:00 KM-RB (Kórinn - Gervigras)
Ísland í dag - Evrópuleikir hjá Vestra og Stjörnunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik9+1421
2FH9+1220
3Stjarnan9+817
4ÍBV9-314
5Þróttur R.9+213
6Grindavík/Njarðvík9-312
7Víkingur R.9-610
8Valur9-39
9Þór/KA9-66
10Fram9-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.