Fotbolti.net
25.08.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Líkir Höjlund við Kane - „Svigrúm til að bæta sig"

Líkir Höjlund við Kane - „Svigrúm til að bæta sig"
Canon

Mynd: EPA

Massimiliano Allegri, stjóri Napoli, segir að Rasmus Höjlund líkist enska framherjanum Harry Kane á margan hátt.

Höjlund gekk til liðs við Napoli á láni frá Man Utd á síðasta tímabili en hann gekk alfarið til liðs við félagið í sumar. Hann kom að 17 mörkum í 33 leikjum í ítölsku deildinni á síðustu leiktíð.
„Hvað varðar eiginleika sé ég hann mjög svipaðan og Harry Kane: þeir eru tveir öflugir leikmenn sem brjóta sig frá, eru líkamlega sterkir og vita hvernig á að fara öxl í öxl við varnarmenn," sagði Allegri.

„Ég held að Hójlund hafi ennþá mikið svigrúm til að bæta sig og hann verður að vilja það fyrst og fremst í lokakaflanum, sem er það sem skiptir máli.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.