Fotbolti.net
25.08.26 - 21:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Afturelding hársbreidd frá Bestu deildinni

Lengjudeildin: Afturelding hársbreidd frá Bestu deildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
Afturelding 2 - 0 Grótta
1-0 Joacim Emil Godhei Holtan ('30 )
2-0 Joacim Emil Godhei Holtan ('84 )
Lestu um leikinn
Afturelding fékk Gróttu í heimsókn í Lengjudeildinni í kvöld. Afturelding gat náð fimm stiga forystu á toppnum og þá þurfti Grótta á sigri að halda til að eiga möguleika á að komast í umspil um sæti í Bestu deildinni.

Afturelding fékk gott færi á 24. mínútu Bart Kooistra fékk boltann en varnarmenn Gróttu náðu að verjast. Boltinn barst til Óðins Bjarkasonar en aftur náðu Gróttumenn að komast fyrir.

Afturelding komst yfir stuttu síðar þegar Joacim Holtan skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Bjarti Bjarma Barkarsyni.

Sævar Atli Hugason var nálægt því að bæta við öðru marki undir lok fyrri hálfleiks eftir frábært einstaklingsframtak en skotið rétt framhjá.

Holtan innsiglaði sigur Aftureldingar undir lokin þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu.

Afturelding er á toppnum með fimm stiga forystu á Þrótt og Fylki þegar sex stig eru eftir í pottinum. Þá er ljóst að HK og Njarðvík eru einnig búin að tryggja sér sæti í umspilinu.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding20+3142
2Þróttur R.20+1837
3Fylkir20+1237
4HK20+1235
5Njarðvík20+1035
6Grótta20-327
7Vestri20-927
8Leiknir R.20025
9ÍR20-525
10Grindavík20-1121
11Völsungur20-1620
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.