Fotbolti.net
09.09.26 - 22:56
Brynjar Ingi Erluson

Taldi sig eiga verðlaunin skilið - „Ég lagði upp fjögur og hann skoraði úr víti!“

Morgan Rogers og Cole Palmer

Morgan Rogers og Cole Palmer

Canon

Mynd: EPA

Morgan Rogers var ekki alveg sáttur við valið á manni leiksins í 6-3 sigri Chelsea á Leeds í enska deildabikarnum í kvöld. Hann þurfti sjálfur að afhenda liðsfélaga sínum Cole Palmer verðlaunin þótt honum fyndist hann eiga þau skilið.
Enski deildabikarinn: Ótrúlegur níu marka leikur í Lundúnum - Palmer og Welbeck með tvö
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Ótrúlegur níu marka leikur í Lundúnum - Palmer og Welbeck með tvö

Báðir komu inn af bekknum í síðari hálfleik. Palmer skoraði tvívegis, annað úr vítaspyrnu og hitt eftir stoðsendingu frá Rogers.

Rogers lagði upp tvö mörk til viðbótar og átti einnig sendinguna sem leiddi að marki Valentin Barco. Hún var þó ekki skráð sem stoðsending þar sem Michael Zetterer, markvörður Leeds, varði boltann út til Barco sem skoraði.

Sky Sports fékk Rogers til að afhenda Palmer verðlaunin sem maður leiksins en hann var ekki alveg sáttur við að liðsfélaginn hefði verið tekinn fram yfir hann.

„Ég lagði upp fjögur mörk og hann skoraði úr víti. Ég á bágt með að trúa þessu, þetta er bilun,“ sagði Rogers þegar hann rétti Palmer verðlaunin.

„Ég skal hrósa þér,“ svaraði Palmer en Rogers var fljótur að svara til baka:„Nei, ekki minnast á mig. Þetta er glæpsamlegt.“

Þetta var allt í léttu gríni en keppnismaðurinn í Rogers leyndi sér ekki. Af svipnum að dæma fannst honum hann sjálfur eiga verðlaunin skilið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.