Fotbolti.net
09.09.26 - 23:23
Brynjar Ingi Erluson

„VAR-dómarinn horfði á leikinn heima í stofu“

Okan Buruk var brjálaður eftir leik

Okan Buruk var brjálaður eftir leik

Canon

Mynd: EPA

Okan Buruk, þjálfari Galatasaray, var ósáttur við dómgæsluna í 3-1 tapinu fyrir Sporting í Meistaradeildinni í kvöld og beindi spjótum sínum sérstaklega að VAR-teyminu.
Buruk var sérstaklega ósáttur við tvö atvik í leiknum. Hann taldi Sergi Altimira eiga að fá rautt spjald fyrir að sparka í magann á Alexey Batrakov en Sporting-maðurinn slapp með gult. Þá gagnrýndi hann vítaspyrnuna sem Sporting fékk þegar Luis Suarez féll í teignum.

Suarez reyndi að komast framhjá markverðinum og lét sig falla. Buruk virðist hafa nokkuð til síns máls þar sem markvörðurinn virtist ekki snerta framherjann.

„Þetta hefur ekkert með andstæðinginn að gera. Dómarinn hefur bein áhrif á leikinn með því að sleppa augljósu rauðu spjaldi og dæma vítaspyrnu sem átti aldrei að dæma.“

„VAR-dómarinn var líklega ekki á leikvanginum. Hann horfði á leikinn heima hjá sér og skipti sér ekki af neinu. Ég hefði óskað þess að hann hefði líka mætt á völlinn því hann hefði átt að láta aðaldómarann vita af rauða spjaldinu og þessum vítaspyrnudómi,“ sagði Buruk.



Buruk var ekki sáttur með dómgæsluna

Buruk var ekki sáttur með dómgæsluna

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.