Fotbolti.net
09.09.26 - 12:46
Elvar Geir Magnússon

Verður Amass í vinstri bakverði hjá Man Utd á morgun?

Hinn 19 ára gamli Harry Amass gæti spilað hjá United á morgun.

Hinn 19 ára gamli Harry Amass gæti spilað hjá United á morgun.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur ekki úr miklu að moða þegar kemur að vinstri bakvörðum. Luke Shaw byrjaði alla deildarleiki United á síðasta tímabili og hefur spilað alla þrjá leikina til þessa.

En það er óraunhæft að telja að Shaw, sem er 31 árs og á langa meiðslakafla á ferilskrá sinni, verði klár í alla leiki.

Hann æfði ekki með United í morgun en félagið sagði við fréttamenn að hann hafi átt hvíldardag. United er að fara að spila gegn Sabah frá Aserbaísjan í Meistaradeildinni á morgun.
Manchester United er að fara að spila grannaslag gegn Manchester City á á sunnudag og þarf að Shaw að halda í þeim leik.

Enskir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvort hann verði hvíldur en hinn 19 ára gamli Harry Amass var á æfingu dagsins og gæti spilað í vinstri bakverðinum.
Luke Shaw æfði ekki í morgun.

Luke Shaw æfði ekki í morgun.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.