09.09.26 - 11:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jesus ósáttur við Arsenal: Enginn sagði mér neitt

Mynd: EPA

Mynd: Barcelona

Mynd: EPA
Gabriel Jesus gekk í raðir Barcelona í sumar eftir að hafa verið hjá Arsenal í fjögur ár. Hann er mjög ósáttur við hvernig ráðamenn hjá Arsenal komu fram við sig.
Sóknarmaðurinn segir að félagið hafi skilið hann eftir í algjöri óvissu og fékk svo ekki að æfa með liðinu lokadagana áður en hann fór frá Lundúnum.

Jesus segir að skortur hafi verið á samskiptum frá þeim sem ráða hjá Arsenal.
„Sannleikurinn er sá að ég var að æfa með liðinu. Ég tók allt undirbúningstímabilið vitandi að ég myndi ekki fá jafnmörg tækifæri og áður. En enginn sagði mér neitt," sagði Jesus við SportyTV.
„Ég er fagmaður, auðvitað var ég að æfa, og svo allt í einu var ég tekinn út úr æfingahópnum. Ég var að leggja mig eins mikið fram og ég gat til að vera tilbúinn ef ég myndi fá tækifærið aftur, og svo síðustu vikuna gerðist þetta mjög fljótt."
Jesus er mjög ánægður með Deco sem er yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona. „Það sem Deco gerði, forsetinn og félagið og umboðsmaðurinn var stórkostlegt. Þegar ljóst var að tækifærið var að koma hingað, þá sagði ég auðvitað já um leið. Ég er ánægður að vera hérna," segir brasilíski framherjinn.
Hann er 29 ára og skoraði 32 mörk í 123 leikjum í öllum keppnum með Arsenal. Hann skoraði þrjú mörk í 14 deildarleikjum á síðasta tímabili þegar Arsenal varð Englandsmeistari.
Barcelona á leik gegn Feyenoord í Meistaradeildinni klukkan 16:45 í dag.