Fotbolti.net
09.09.26 - 08:17
Elvar Geir Magnússon

Ungstirni Dortmund hné niður og fór á sjúkrahús

Konstantinos Karetsas borinn af velli á börum.

Konstantinos Karetsas borinn af velli á börum.

Canon

Mynd: EPA

Ungstirnið Konstantinos Karetsas, leikmaður Borussia Dortmund, hné niður eftir 25 mínútur í hans fyrsta Meistaradeildarleik.

Þessi 18 ára Grikki var með meðvitund þegar hann var borinn af velli og fluttur á sjúkrahús. Samkvæmt yfirlýsingu Dortmund er líðan hans góð eftir atvikum og um blóðrásarvandamál að ræða.
Meistaradeildin: Haaland afgreiddi Porto - Mikið fjör í Madríd
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Haaland afgreiddi Porto - Mikið fjör í Madríd

Karetsas fór í frekari rannsóknir. Atvikið átti sér stað eftir að hann hafði sent boltann, hann gaf síðan merki um að ekki væri allt í lagi og settist niður á grasið.

Hann fékk aðhlynningu á vellinum áður en hann fór út af á börum. Hann var keyptur til Dortmund frá Genk í Belgíu í sumar.

Dortmund lék gegn Villarreal í gær þegar Karetsas hné niður. Staðan var þá 0-0 en leikurinn endaði með 3-2 sigri þýska liðsins.

Konstantinos Karetsas.

Konstantinos Karetsas.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.