09.09.26 - 09:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bestu varnarliðin mætast í Njarðvík - Verður fyrirliðinn með?

Eiður Aron er fyrirliði Njarðvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þróttur er besta varnarlið Lengjudeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Aron er fyrirliði Njarðvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Klukkan 17:00 tekur Njarðvík á móti Þrótti í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Lengjudeildarumspilinu. Njarðvík endaði í 5. sæti deildarinnar en Þróttur endaði í 2. sæti.
Þróttur er besta varnarlið Lengjudeildarinnar en liðið fékk einungis á sig 25 mörk í deildinni, eða 1,14 mörk að meðaltali í leik. Þróttur hélt sex sinnum hreinu í deildinni. Þróttur endaði deildina með markatöluna 50:25 og fimm stigum meira (43 stig) en Njarðvík.
Njarðvík fékk á sig 29 mörk á tímabilinu, eða 1,32 mörk að meðaltali í leik. Njarðvík hélt átta sinnum hreinu og endaði með markatöluna 38:29.

TENGT EFNI
Spennandi leikmenn til að fylgjast með í umspilinu í Lengjudeildinni
Bæði lið unnu heimaleikina í innbyrðis viðureignum liðanna. Njarðvík vann 1-0 í seinni umferðinni en Þróttur vann 2-0 í fyrstu umferðinni.
Í 21. umferð deildarinnar fór lykilmaður meiddur af velli í liði Njarðvíku, það var fyrirliðinn Eiður Aron Sigurbjörnsson og er óvíst hvort hann getur tekið þátt í einvíginu. Eyjamaðurinn er án efa einn allra besti varnarmaður deildarinnar. Fjarvera hans í lokaumferðinni kom ekki að sök því Njarðvík vann topplið Aftureldingar 2-1 á heimavelli. „Eiður er örlítið meiddur. Það verður bara að koma í ljós, ég er ekki alveg viss hvort hann taki þátt í þeim leik, en vonandi," sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, við Fótbolta.net eftir sigurinn á Aftureldingu.
Leikurinn í dag verður í beinni útsendingu á Livey og að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net. HK tekur þá á móti Fylki í hinu undanúrslitaeinvíginu. Sá leikur hefst klukkan 19:15 í Kórnum.