Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 10. janúar 2021 16:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Marine og Tottenham: Kane ekki með
Dele Alli byrjar.
Dele Alli byrjar.
Mynd: Getty Images
Eftir klukkutíma verður flautað til leiks hjá Marine og Tottenham í FA-bikarnum á Englandi.

Þetta verður mjög athyglisverður leikur í ljósi þess að Tottenham er í efstu deild og Marine í áttundu efstu deild. Aldrei hefur verið jafn mikill munur á andstæðingum í FA-bikarnum.

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, mætir með nokkuð breytt lið til leiks. Harry Kane er ekki í leikmannahópi Spurs en Son Heung-min og Gareth Bale byrja á bekknum.

Joe Hart er í markinu og Dele Alli fær tækifæri. Ben Davies er með fyrirliðabandið hjá Spurs.

Byrjunarlið Marine: Passant, Solomon-Davies, Joyce, Devine, Miley, Raven, Kengni, Hmami, Cummins, Hughes, Barrigan.

Byrjunarlið Tottenham: Hart, Doherty, Alderweireld, Rodon, Davies, Sissoko, White, Gedson, Alli, Lucas, Vinicius.
(Varamenn: Gazzaniga, Sanchez, Tanganga, Reguilon, Devine, Ndombele, Clarke, Bale, Son)

Sjá einnig:
Mourinho og 20,000 aðrir keypt miða á leikinn áhugaverða
Andstæðingar Tottenham fá hjálp frá Everton og Liverpool
Athugasemdir
banner