Fotbolti.net
10.01.21 - 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Juve lagði Sassuolo - Mikilvæg stig fyrir Fiorentina

Ítalía: Juve lagði Sassuolo - Mikilvæg stig fyrir Fiorentina
Canon

Mynd: Getty Images

Tveimur síðustu leikjum dagsins í ítalska boltanum er lokið. Þar hafði Fiorentina betur gegn Cagliari áður en Ítalíumeistarar Juventus lögðu Sassuolo að velli.
Staðan var markalaus í hálfleik hjá Juve og Sassuolo en Pedro Obiang fékk rautt spjald skömmu fyrir leikhlé og róðurinn því þungur fyrir tíu leikmenn Sassuolo í síðari hálfleik. Paulo Dybala fór meiddur af velli skömmu fyrir leikhlé, Weston McKennie meiddist einnig fyrr í hálfleiknum.

Danilo kom Juve yfir snemma í síðari hálfleik en Gregoire Defrel jafnaði skömmu síðar og staðan því 1-1 á 60. mínútu. Heimamenn stýrðu leiknum og skoraði Aaron Ramsey verðskuldað mark áður en Cristiano Ronaldo gerði endanlega út um leikinn í uppbótartíma.

Juve er í fjórða sæti, með 33 stig eftir 16 umferðir. Sassuolo er í sjöunda sæti með 29 stig.

Juventus 3 - 1 Sassuolo
1-0 Danilo ('51)
1-1 Gregoire Defrel ('59)
2-1 Aaron Ramsey ('82)
3-1 Cristiano Ronaldo ('92)
Rautt spjald: Pedro Obiang, Sassuolo ('45)

Í Flórens skoraði Dusan Vlahovic eina mark leiksins í 1-0 sigri í nokkuð jöfnum leik gegn Cagliari.

Stigin eru afar mikilvæg fyrir Fiorentina sem hefur átt í miklum erfiðleikum á upphafi tímabils og er aðeins með 18 stig eftir 17 umferðir.

Cagliari er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 14 stig.

Fiorentina 1 - 0 Cagliari
1-0 Dusan Vlahovic ('72)
Ítalía: Juve lagði Sassuolo - Mikilvæg stig fyrir Fiorentina
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.